Fréttir


Fréttir: júní 2019

Fyrirsagnalisti

28.6.2019 : Tilkynning um óbreyttan sveiflujöfnunarauka

Fjármálaeftirlitið tilkynnti í dag um óbreyttan sveiflujöfnunarauka í samræmi við tilmæli fjármálastöðugleikaráðs frá 24. júní 2019.

Lesa meira

28.6.2019 : Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið sameinast í eina stofnun um næstu áramót

Alþingi samþykkti hinn 20. júní síðastliðinn ný lög um Seðlabanka Íslands en með lögunum sameinast Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið í eina stofnun frá og með næstu áramótum. Með lögunum eru ekki gerðar breytingar á þeim verkefnum sem eru á ábyrgð þessara tveggja stofnana heldur lúta þau að sameiningu verkefna hjá einni stofnun, stjórnskipan og fyrirkomulagi ákvarðanatöku, einkum í ljósi aukins vægis fjármálastöðugleika.

Lesa meira

26.6.2019 : Fjármálaeftirlitið skráir FX Iceland ehf. sem gjaldeyrisskiptastöð

Fjármálaeftirlitið skráði FX Iceland ehf. sem gjaldeyrisskiptastöð hinn 26. júní 2019, sbr. 35. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglur nr. 535/2019 um skráningu gjaldeyrisskiptastöðva og þjónustuveitenda sýndarfjár og stafrænna veskja.

Lesa meira

24.6.2019 : Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna sjóða

Þann 5. júní sl. samþykkti Fjármálaeftirlitið samruna eftirfarandi sjóða GAMMA Capital Management og eftirfarandi sjóða Júpíters rekstrarfélags hf., sbr. 56. gr. a laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði:

Lesa meira

24.6.2019 : Fjármálaeftirlitið samþykkir yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA Capital Management hf. til Júpíters rekstrarfélags

Þann 31. maí 2019 samþykkti Fjármálaeftirlitið yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA Capital Management hf., kt. 530608-0690, til Júpíters rekstrarfélags, kt. 520506-1010, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Um er að ræða rekstur GAMMA: Covered Bond Fund. Yfirfærslan mun eiga sér stað 1. júlí nk.

Lesa meira

21.6.2019 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Vátryggingafélag Íslands hf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í T Plús hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689-2009, sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í T Plús hf. sem nemur allt að 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. 

Lesa meira

20.6.2019 : Lífeyrissparnaður við árslok 2018

Fjármálaeftirlitið hefur birt samantekt um stöðu lífeyrissparnaðar þ.e. samtryggingar og séreignar við árslok 2018. Efnið er unnið úr þeim gögnum sem Fjármálaeftirlitinu hafa borist frá lífeyrissjóðum og öðrum vörsluaðilum séreignarsparnaðar.

Lesa meira

19.6.2019 : Í tilefni frétta vill Fjármálaeftirlitið árétta kröfur sem gerðar eru til starfsemi lífeyrissjóða

Í tilefni frétta um að stéttarfélag hafi til skoðunar að afturkalla umboð stjórnarmanna er félagið hefur tilnefnt í stjórn lífeyrissjóðs vill Fjármálaeftirlitið minna á þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum til starfsemi lífeyrissjóða. 

Lesa meira

14.6.2019 : Fjármálaeftirlitið veitir Monerium EMI ehf. starfsleyfi sem rafeyrisfyrirtæki

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Monerium EMI ehf. kt. 571110-0240, Lækjargötu 2, starfsleyfi sem rafeyrisfyrirtæki samkvæmt lögum nr. 17/2013 um útgáfu og meðferð rafeyris. Starfsleyfi Monerium EMI ehf. tekur til útgáfu rafeyris, skv. 15. gr. fyrrgreindra laga.

Lesa meira

13.6.2019 : Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2018

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga ársins 2018 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum, verðbréfafyrirtækjum og rekstrarfélögum verðbréfasjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri einstakra rekstrarfélaga og heildareignir fagfjárfestasjóða í rekstri rekstrarfélaga og annarra rekstraraðila. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar upplýsingar um Íbúðalánasjóð og greiðslustofnanir.

Lesa meira

12.6.2019 : Fjármálaeftirlitið birtir fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti: rafeyrir og peningasendingar

Undanfarin misseri hefur Fjármálaeftirlitið gefið út margvíslegt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í dag voru gefnir út tveir nýir bæklingar, annars vegar um Áhættuþætti tengda peningasendingum og hins vegar Áhættuþætti vegna útgáfu og meðferðar rafeyris.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica