Fréttir


Fréttir: október 2007

Fyrirsagnalisti

31.10.2007 : Tilkynning til útgefenda fjármálagerninga á OMX Nordic Exchange Iceland

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tilnefnt OMX Nordic Exchange Iceland (Kauphöllina) sem aðila til að varðveita upplýsingar sem birtar eru opinberlega í samræmi við ákvæði VII., VIII og IX. kafla laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti, með rafrænum hætti í miðlægu geymslukerfi í samræmi við 136. gr. laganna.

Lesa meira

31.10.2007 : CESR: Ný tilhögun á tilkynningaskyldu vegna afleiðna

CESR hefur gefið út fréttatilkynninga ásamt opinberri yfirlýsingu vegna nýrrar tilhögunar á tilkynningaskyldu til samræmis við MiFID sem unnið hefur verið að í samstarfi við eftirlitsskylda aðila.

Lesa meira

30.10.2007 : Ný löggjöf um verðbréfaviðskipti

Þann 1. nóvember 2007 taka gildi ný lög um verðbréfaviðskipti og ný lög um kauphallir auk þess sem gildandi lög um fjármálafyrirtæki taka breytingum. Breytingar þessar eru hluti af innleiðingarferli svokallaðrar MiFID tilskipunar Evrópusambandsins og munu auka fjárfestavernd og efla samkeppnishæfni íslensks fjármálamarkaðar.

Lesa meira

25.10.2007 : Reglur um fjárfestingaráðgjöf

Nýjar reglur á verðbréfa- og fjármálamarkaði kveða á um að aðilar sem veita fjárfestingaráðgjöf munu eftir 1.nóvember n.k. þurfa sérstakt starfsleyfi til að sinna þeirri starfsemi.

Lesa meira

25.10.2007 : Umræðuskjal um verkáætlun vegna MiFID

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR hefur birt á heimasíðu sinni umræðuskjal sem lýtur að verkáætlun varðandi MIFID fyrir tímabilið 2007/2008.

Lesa meira

23.10.2007 : FME: Eftirlit í alþjóðlegu umhverfi

Mikill og ör vöxtur íslenskra fjármálafyrirtækja á alþjóðlegum mörkuðum hefur umbreytt íslenskum fjármálamarkaði á stuttum tíma. Þessi auknu umsvif íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum vettvangi hefur töluverð áhrif á starfsemi Fjármálaeftirlitsins (FME) og hefur FME því mótað stefnu um starfsemi sína í alþjóðlegu umhverfi.

Lesa meira

10.10.2007 : Reykjavíkurborg fær heimild til að fara með virkan eignarhlut í Lánasjóði sveitarfélaga ohf.

Þann 2. október 2007, veitti Fjármálaeftirlitið Reykjavíkurborg, heimild til þess að fara með virkan eignarhlut allt að 20% í Lánasjóði sveitarfélaga ohf.

Lesa meira

4.10.2007 : Túlkun um verð í yfirtökutilboði

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út túlkun sína á 2. mgr. 40. gr. laga um verðbréfaviðskipti um verð í yfirtökutilboði.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica