Fréttir


Fréttir: nóvember 2018

Fyrirsagnalisti

30.11.2018 : Fjármálaeftirlitið hvetur fyrirtæki og aðila á fjármálamarkaði til að gæta að netöryggi í starfsemi sinni

Fjármálaeftirlitið hefur í dag sent lífeyrissjóðum dreifibréf þar sem þeir eru hvattir til að gæta að netöryggi í starfsemi sinni. Fjármálaeftirlitið vill jafnframt vara önnur fyrirtæki á fjármálamarkaði við. Sífellt algengara er að fyrirtæki og aðilar á fjármálamarkaði séu skotmörk þar sem reynt er að svíkja út fjármuni. Þau svik fara oft þannig fram að sendir eru póstar í nafni innri aðila þar sem óskað er eftir millifærslu á ákveðinn reikning (e. CEO fraud) eða að brotist er inn í tölvupósthólf starfsmanns til að breyta millifærsluupplýsingum sem berast í tölvupósti.  

Lesa meira

28.11.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Scottish Widows Limited to Scottish Widows Europe S.A. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 27. nóvember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

28.11.2018 : Kröfur varðandi starfsemi lífeyrissjóða

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum vill Fjármálaeftirlitið minna á þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum til starfsemi lífeyrissjóða.

Lesa meira

26.11.2018 : Fræðsluefni gefið út um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Dómsmálaráðuneytið hefur birt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á vef sínum. Um er að ræða tvo bæklinga sem fjalla annars vegar um rannsóknar- og tilkynningarskyldu tilkynningarskyldra aðila og hins vegar um þjálfun starfsmanna.

Lesa meira

26.11.2018 : Tímabundin stöðvun viðskipta – afturköllun

Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Fjármálaeftirlitið hefur nú afturkallað kröfur um tímabundna stöðvun í kjölfar tilkynningar frá félaginu um framgang mála um kaup á Wow air hf. 

Lesa meira

26.11.2018 : Tímabundin stöðvun viðskipta

Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf.

Lesa meira

19.11.2018 : Nýjar reglur um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út nýjar reglur nr. 1001/2018 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja. Leysa þær af hólmi gildandi reglur um sama efni nr. 672/2017 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja. Reglurnar voru samþykktar af stjórn Fjármálaeftirlitsins 17. október sl. og birtar á vef Stjórnartíðinda 15. nóvember.

Lesa meira

13.11.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Travelers Casualty and Surety Company of Europe Limited til Travelers Insurance Company Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 6. nóvember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

13.11.2018 : Meðhöndlun innherjaupplýsinga hjá stjórnvöldum

Fjármálaeftirlitið hefur sent dreifibréf til ráðuneyta og tiltekinna stofnana þar sem athygli er vakin á gildandi lögum og reglum sem gilda um meðferð innherjaupplýsinga hjá stjórnvöldum. 

Lesa meira

12.11.2018 : Fjármálaeftirlitið gefur út drög að viðmiðum og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 8/2018. Umræðuskjalið inniheldur drög að uppfærðum viðmiðum og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis (SREP) hjá fjármálafyrirtækjum.  

Lesa meira

6.11.2018 : Lánveitendur fasteignalána til neytenda eru skráningarskyldir

Að undanförnu hefur Fjármálaeftirlitið þurft að bregðast við auglýsingum frá verktökum í byggingariðnaði þar sem kaupendum nýrra íbúða í þeirra eigu er boðið að fjármagna kaup sín með veðtryggðu viðbótarláni frá hlutaðeigandi verktaka.

Lesa meira

5.11.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Standard Life Assurance Limited til Standard Life International DAC. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 30. október 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica