Fjármálaeftirlitið gefur út viðmið og aðferðafræði sem eftirlitið leggur til grundvallar könnunar- og matsferli (SREP) sínu sbr. 107. gr. i laga um fjármálafyrirtæki. Fjármálaeftirlitið gefur einnig út viðmið og aðferðafræði sem eftirlitið leggur til grundvallar eftirlitsferli (SRP) sínu sbr. 30. gr. laga um vátryggingastarfsemi. Markmið birtingarinnar er að auka gagnsæi í störfum fjármálaeftirlitsins og veita eftirlitsskyldum aðilum leiðbeiningar að þessu leyti.