Tryggingastærðfræðingar og aðilar með sambærilega þekkingu
Einstaklingar geta hlotið viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins til að sinna verkefnum tryggingastærðfræðings tiltekinna líftryggingafélaga og til að sinna tryggingafræðilegum athugunum í starfsemi lífeyrissjóða.
Þannig skal líftryggingafélag sem fellur undir undanþáguákvæði laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skv. 3. mgr. 3. gr. sömu laga (m.ö.o. líftryggingafélag sem undanþegið er Solvency II tilskipuninni) tryggja sér þjónustu tryggingastærðfræðings, eða sérfræðings með sambærilega þekkingu, sem hefur á hendi nauðsynlega tryggingatæknilega útreikninga og athuganir fyrir félagið, sbr. 3. mgr. 48. gr. laga um vátryggingastarfsemi. Má sá einn taka að sér slíkt starf fyrir þess háttar líftryggingafélag sem hlotið hefur viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins, sbr. 6. mgr. 48. gr. sömu laga.
Þá ber stjórn lífeyrissjóðs að láta árlega fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins í samræmi við 39. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur, sbr. 1. mgr. 24. gr. sömu laga. Skal tryggingafræðileg athugun framkvæmd af tryggingafræðingi eða sérfræðingi með sambærilega þekkingu, sem hlotið hafa viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins til slíks starfs, samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 129/1997.
Óski aðili eftir viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins samkvæmt 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2016 og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 129/1997 til að taka að sér störf fyrir líftryggingafélög eða lífeyrissjóði skal aðili skila til Fjármálaeftirlitsins umsókn þess efnis.
Við mat á hvort veita ber aðilum viðurkenningu hefur Fjármálaeftirlitið til hliðsjónar námsskrár í tryggingafræði sbr. þær sem International Actuarial Association (IAA) eða Actuarial Association of Europe (AAE) gefa út. Þess utan er einnig litið til þess hvort aðili hafi starfsreynslu sem nýtist í starfi.
Aðilar sem hlotið hafa viðurkenningu frá Fjármálaeftirlitinu eru:
Nafn |
Dagsetning |
Benedikt Jóhannesson | 14.4.1992 |
Bjarni Guðmundsson | 17.1.1997 |
Helgi Bjarnason | 14.10.1997 |
Vigfús Ásgeirsson | 31.1.1998 |
Sigurður Freyr Jónatansson | 21.12.1998 |
Steinunn Guðjónsdóttir | 17.3.1999 |
Þórir Óskarsson | 5.1.2009 |
Helgi Þórsson | 2.4.2012 |
Jón Ævar Pálmason | 22.12.2020 |
Jóhanna Sigmundsdóttir | 5.7.2021 |