Fréttir


Fréttir: september 2016

Fyrirsagnalisti

29.9.2016 : Annað tölublað Fjármála komið út

Annað tölublað ársins af Fjármálum, vefriti Fjármálaeftirlitsins, er komið út. Í blaðinu fjallar Jón Ævar Pálmason, sérfræðingur í áhættugreiningu um lífslíkur eftir þjóðfélagsstöðu. Þá eru í blaðinu greinarnar: Er kostnaður við gerð lýsingar hindrun í fjármögnunarferli fyrirtækja?, eftir Arnfríði K. Arnardóttur, sérfræðing í lýsingum og Mikilvægi viðbragðsáætlana vegna lausafjárhættu í starfsemi fjármálafyrirtækja eftir Brynjar Harðarson, sérfræðing í áhættugreiningu.

Lesa meira

27.9.2016 : Fjármálaeftirlitið fjallar um stöðu lífeyrissjóðanna 2015

Fjármálaeftirlitið hefur birt  samantekt yfir stöðu íslenskra lífeyrissjóða  við árslok 2015. Efnið er unnið úr þeim gögnum sem Fjármálaeftirlitinu hafa borist frá Lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar miðað við árslok 2015. Lífeyriskerfið er öflugt og heldur áfram að stækka í efnahagslegu tilliti. Á liðnu ári voru starfandi 26 lífeyrissjóðir í 76 deildum samtryggingar og séreignar. Aðrir vörsluaðilar séreignasparnaðar voru sjö talsins. Tryggingafræðileg staða samtryggingadeilda lífeyrissjóða heldur áfram að batna. Eftir sem áður er staða sjóða með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga sú að þeir eru með umtalsverðan halla.

Lesa meira

24.9.2016 : Netsambandslaust við FME í dag

Vegna vinnu við tölvukerfi FME, verður netsambandslaust við Fjármálaeftirlitið frá kl 10 í dag, laugardag 24. Sept, og fram eftir degi

Lesa meira

22.9.2016 : Lokað föstudaginn 23. september

Skrifstofa Fjármálaeftirlitsins er lokuð 23. september vegna starfsdags. Skrifstofan verður að venju opnuð klukkan níu að morgni mánudagsins 26. september.

Lesa meira

19.9.2016 : Áhætta getur falist í viðskiptum með fjármálagerninga sem tengdir eru gjaldmiðlum

Að gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið vara almenning jafnt og fjárfesta við þeirri áhættu sem getur falist í viðskiptum með fjármálagerninga sem tengdir eru gjaldmiðlum, en að undanförnu hefur borið á óhefðbundinni markaðssetningu á slíkum viðskiptum sem talist getur villandi. Eftirlitið vill jafnframt hvetja neytendur sem hafa í hyggju að fjárfesta í slíkum gerningum að leita sérfræðiráðgjafar hjá aðilum sem hafa starfsheimild til fjárfestingarráðgjafar til að tryggja hagsmuni sína sem best. 

Lesa meira

13.9.2016 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Solo Invest ehf. og Örn Þorsteinsson hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Straumi sjóðum hf.

Hinn 8. september sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Solo Invest ehf., kt. 620109-0610, sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Straumi sjóðum hf. sem nemur 50%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Lesa meira

12.9.2016 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns

Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns:

Lesa meira

9.9.2016 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns

Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu á hluta líftryggingastofns:

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica