Fréttir


Fréttir: janúar 2019

Fyrirsagnalisti

31.1.2019 : Yfirlýsing vegna viðlagaæfingar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í janúar 2019

Stjórnvöld sem bera ábyrgð á eftirliti með fjármálastöðugleika á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum héldu sameiginlega viðlagaæfingu 22. og 23. þessa mánaðar. Í æfingunni tóku þátt 31 stjórnvald frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi og Svíþjóð ásamt viðkomandi stofnunum Evrópusambandsins. Starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fylgdist einnig með æfingunni.

Lesa meira

29.1.2019 : Morgunverðarfundur um samkeppnisumhverfi fjármálakerfisins í tilefni 20 ára afmælis Fjármálaeftirlitsins

Fjármálaeftirlitið efnir til morgunverðafundar um samkeppnisumhverfi fjármálakerfisins þriðjudaginn 12. febrúar næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Gullteigi á Grand Hótel Reykjavík. Morgunverður hefst kl. 8:00, fundurinn sjálfur stendur frá 8:30 til 10:00. 

Lesa meira

28.1.2019 : Reglugerð um endurbótaáætlanir fjármálafyrirtækja hefur verið gefin út

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út Reglugerð um endurbótaáætlanir lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og samstæður þeirra nr. 50/2019. Reglugerðin gildir um endurbótaáætlanir lánastofnana og verðbréfafyrirtækja með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og samstæður þeirra ef við á sam­kvæmt IX. kafla A sömu laga.

Lesa meira

25.1.2019 : Tilkynning um fyrirhugaðar yfirfærslur hluta vátryggingastofna

Hér með tilkynnist um yfirfærslur hluta vátryggingastofna frá Royal & Sun Alliance Insurance Plc og The Marine Insurance Company Limited til Mercantile Indemnity Company Limited. Fyrirhugaðar yfirfærslur eru í samræmi við tilkynningu dags. 24. janúar 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

18.1.2019 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. hæfan til að fara með virkan eignarhlut í GAMMA Capital Management hf.

Hinn 17. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í GAMMA Capital Management hf. eða sem nemur yfir 50%, skv. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  

Lesa meira

18.1.2019 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. hæfan til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf.

Hinn 27. desember sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, væri hæfur til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf. eða sem nemur yfir 50%, skv. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 120/2011 um greiðsluþjónustu.  

Lesa meira

10.1.2019 : Söfnunarlíftryggingar –uppsögn vátryggingasamnings

Fjármálaeftirlitið hvetur neytendur til að kynna sér vandlega afleiðingar þess að segja upp samningi um sparnað eða líftryggingar hjá einu vátryggingafélagi til að flytja sig til annars. Í slíkum tilvikum þarf að hafa í huga að neytandinn getur orðið fyrir fjárhagslegu tjóni við flutninginn þar sem áunnin réttindi hjá fyrra félaginu geta tapast við uppsögn samningsins. Þá er gott að hafa í huga við slíkar aðstæður að söfnunarlíftryggingar og viðbótarlífeyrissparnaður eru í eðli sínu langtíma fjárfestingar. Sé því haldið fram að viðkomandi fái betri vátryggingarsamning hjá öðru vátryggingafélagi er rétt að staldra við og spyrja gagnrýnna spurninga um þann samning sem um ræðir og þann vátryggjanda sem um ræðir. 

Lesa meira

2.1.2019 : Hefur þú áhuga á að sinna verkefnum fyrir Fjármálaeftirlitið?

Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að Fjármálaeftirlitið þurfi að kalla til sérfræðinga utan stofnunarinnar til að sinna afmörkuðum verkefnum. Fjármálaeftirlitið hefur til að mynda heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila. Þá hefur Fjármálaeftirlitið heimild til að skipa bráðabirgðastjórn yfir eftirlitsskylda aðila við sérstakar aðstæður o.fl.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica