Fréttir


Fréttir: október 2014

Fyrirsagnalisti

31.10.2014 : Fjármálaeftirlitið gefur út drög að leiðbeinandi tilmælum um stjórnarhætti vátryggingafélaga, sbr. umræðuskjal nr. 12/2014

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 12/2014 um drög að leiðbeinandi tilmælum um stjórnarhætti vátryggingafélaga.

Lesa meira

26.10.2014 : EBA birtir niðurstöður álagsprófs á banka innan Evrópusambandsins

Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (EBA) hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst er niðurstöðum á könnun á eignagæðum (e. Asset Quality Review) og álagsprófs (e. Stress Test) sem unnið var að á vegum Evrópska seðlabankans (ECB) og EBA. Markmið álagsprófsins er að meta viðnámsþrótt banka innan Evrópusambandsins.

Lesa meira

22.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið SVN eignafélag ehf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Fjármálaeftirlitið komst hinn 18. júlí 2014 að þeirri niðurstöðu að SVN eignafélag ehf., kt. 630800-2770, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem nemur 20,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi.  Samkvæmt tilkynningu frá SVN eignafélagi hf. frá 4. apríl 2014, fer félagið með 11,68% eignarhlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Lesa meira

22.10.2014 : Tilkynning um afturköllun starfsleyfis LBI hf. að fullu

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur afturkallað starfsleyfi LBI hf. (LBI),  kt. 540291-2259 að fullu á grundvelli heimildar í 6. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga 161/2002 um fjármálafyrirtæki (fftl.) þar sem kveðinn hefur verið upp úrskurður um slit fyrirtækisins skv. XII. kafla laganna.  Áður hafði Fjármálaeftirlitið afturkallað starfsleyfi LBI hf. að hluta með bréfi, dags. 15. september 2011 á grundvelli sömu heimildar. Afturköllun starfsleyfis LBI að fullu miðast við 15. október 2014. Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Lífeyrissjóð Vestmannaeyja hæfan til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Jöklum-Verðbréfum hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, kt. 580572-0229, sé hæfur til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Jöklum - Verðbréfum hf., sem nemur 50,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Samkvæmt tilkynningu frá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja, fer sjóðurinn nú með 50,00% eignarhlut í Jöklum-Verðbréfum hf.

Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Lífeyrissjóðinn Festu hæfan til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Jöklum-Verðbréfum hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Festa lífeyrissjóður, kt. 571171-0239, sé hæfur til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Jöklum - Verðbréfum hf., sem nemur 50,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Samkvæmt tilkynningu frá Festu Lífeyrissjóði, fer sjóðurinn nú með 50,00% eignarhlut í Jöklum-Verðbréfum hf.

Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Eignarhaldsfélagið Mata hf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Eignarhaldsfélagið Mata hf., kt. 450269-0939, sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. sem nemur 20,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Samkvæmt tilkynningu frá Eignarhaldsfélaginu Mata hf., fer félagið nú með 16,175% eignarhlut í Straumi Fjárfestingabanka hf.

Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Siglu ehf., Snæból ehf., Gana ehf., Finn Reyr Stefánsson og Tómas Kristjánsson hæf til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigla ehf., Snæból ehf., Gani ehf., Finnur Reyr Stefánsson og Tómas Kristjánsson, séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. sem nemur 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hið fyrstnefnda félag fer með eignarhlutinn með beinni hlutdeild en hinir síðarnefndu aðilar með óbeinni hlutdeild. Samkvæmt tilkynningu frá Siglu ehf., fer félagið  nú með 16,175% eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Vörðu Capital ehf. og tengda aðila hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Varða Capital ehf., 2G ehf., Steinhaufen Holding ehf., Grímur Alfreð Garðarsson, Jónas Hagan Guðmundsson og Edward Mac Gillivray Schmidt, séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. sem nemur 20,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hið fyrstnefnda félag fer með eignarhlutinn með beinni hlutdeild en hinir síðarnefndu aðilar með óbeinni hlutdeild. Samkvæmt tilkynningu frá Vörðu Capital ehf., fer félagið nú með 16,175% eignarhlut í Straumi Fjárfestingabanka hf. Lesa meira

15.10.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Ingimund hf. og Ármann Ármannsson hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ingimundur hf. og Ármann Ármannsson séu hæfir til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. sem nemur 20,00%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hið fyrstnefnda félag fer með eignarhlutinn með beinni hlutdeild en hinn síðarnefndi aðili með óbeinni hlutdeild. Samkvæmt tilkynningu frá Ingimundi hf., fer félagið nú með 16,175% eignarhlut í Straumi Fjárfestingabanka hf. Lesa meira

14.10.2014 : Samkomulag vegna innleiðingar reglugerða um evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði

Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, sótti fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og ESB í Lúxemborg í dag. Á fundinum náðist samkomulag milli aðila um meginatriði við innleiðingu þriggja reglugerða um evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði. Nánar er fjallað um málið í frétt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Lesa meira

3.10.2014 : Fyrsti fundur kerfisáhættunefndar

Fyrsti fundur nýstofnaðrar kerfisáhættunefndar var haldinn í gær. Nefndin starfar fyrir fjármálastöðugleikaráð og gerir tillögur til ráðsins. Verkefni nefndarinnar er að leggja mat á ástand og horfur í fjármálakerfinu, kerfisáhættu og fjármálastöðugleika hér á landi. Nefndin skal koma saman til fundar að minnsta kosti fjórum sinnum á ári, samanber lög nr. 66 frá 28. maí 2014 um fjármálastöðugleikaráð.

Lesa meira

3.10.2014 : Allra-ráðgjöf ehf.

Allra-ráðgjöf ehf., sem hafði starfsleyfi vátryggingamiðlara, sbr. ákvæði laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga,  hefur skilað inn starfsleyfi sínu, skv. 36. gr. fyrrgreindra laga. Í samræmi við tilkynningu félagsins um að það hafi hætt starfsemi, sem vátryggingamiðlari, hefur Fjármálaeftirlitið fellt félagið út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning þess efnis birt í Lögbirtingablaðinu.

Lesa meira

3.10.2014 : Sigþór Hákonarson

Sigþór Hákonarson, sem hafði starfsleyfi vátryggingamiðlara , sbr. ákvæði laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga,  hefur skilað inn starfsleyfi sínu, skv. 36. gr. fyrrgreindra laga. Í samræmi við tilkynningu um að hann hafi hætt starfsemi, sem vátryggingamiðlari, hefur Fjármálaeftirlitið fellt Sigþór Hákonarson út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning þess efnis birt í Lögbirtingablaðinu.

Lesa meira

1.10.2014 : Fjármálaeftirlitið vekur athygli á löggjöf um birtingu opinberrar fjárfestingarráðgjafar

Að gefnu tilefni vekur Fjármálaeftirlitið athygli á gildandi löggjöf um opinbera fjárfestingarráðgjöf. Í 12. tölulið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) er að finna skilgreiningu á opinberri fjárfestingarráðgjöf:

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica