Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

13.11.2018

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Travelers Casualty and Surety Company of Europe Limited til Travelers Insurance Company Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 6. nóvember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica