Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2018
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum
ársreikninga ársins 2018 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e.
viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum, verðbréfafyrirtækjum og
rekstrarfélögum verðbréfasjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um
heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri einstakra
rekstrarfélaga og heildareignir fagfjárfestasjóða í rekstri rekstrarfélaga og
annarra rekstraraðila. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar
upplýsingar um Íbúðalánasjóð og greiðslustofnanir.
Sú breyting hefur verið gerð að skýrslan er nú gefin út á Excel sniði. Er það
gert til að koma betur til móts við þarfir notenda.