Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna

11.9.2018

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá QBE Insurance (Europe) Limited og yfirfærslu vátryggingastofns frá QBE Re (Europe) Limited til QBE Europe SA/NV. Fyrirhugaðar yfirfærslur eru í samræmi við tilkynningu dags. 10. september 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra yfirfærslna innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félögunum séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica