Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Canada Life Limited til Scottish Friendly Assurance Society Limited

1.7.2019

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Canada Life Limited til Scottish Friendly Assurance Society Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 1. júlí 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica