Fréttir


Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu endurtryggingastofns frá Tryggingu hf. til Íslenskrar endurtryggingar hf.

26.8.2019

Með vísan til 3. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu endurtryggingastofns frá Tryggingu hf. til Íslenskrar endurtryggingar hf.

Vátryggingatakar, vátryggðir og aðrir sem hafa sérstakra hagsmuna að gæta geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar, þ.e. til 26. september 2019.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica