Fréttir


Ríkislögreglustjóri birtir áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka á Íslandi

5.4.2019

Í dag birti Ríkislögreglustjóri á vefsíðu sinni áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka á Íslandi. Áhættumatið byggir á 4. gr. laga nr. 140/2018 og skal m.a. notað til að gera úrbætur á vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, greina atvinnugreinar eða aðstæður sem fela í sér litla eða miklu hættu, greina hvar þörf er á breytingu á regluverki, og vera eftirlitsaðilum til leiðbeiningar varðandi áhættumiðað eftirlit.

Fjármálaeftirlitið hefur komið áhættumatinu á framfæri við tilkynningarskylda aðila sem eru undir eftirliti stofnunarinnar og hvatt þá til þess að kynna sér efni þess og nota það við gerð eigin áhættumats samkvæmt 5. gr. laga nr. 140/2018.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica