Fréttir


Samruni Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. við Landsbankann hf.

14.6.2011

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. við Landsbankann hf. á grundvelli 1. mgr 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Landsbankinn hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. og verða félögin sameinuð undir nafni Landsbankans hf.

Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica