Fréttir


Fjármálaeftirlitið gefur út umræðuskjal nr. 1/2011 um leiðbeinandi tilmæli um undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar hjá fjármálafyrirtækjum

16.2.2011

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út til umsagnar drög að leiðbeinandi tilmælum um undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar hjá fjármálafyrirtækjum, umræðuskjal nr. 1/2011. Tilmælunum er ætlað að leysa af hólmi eldri tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 4/2003 varðandi undanþágu frá starfrækslu endurskoðunardeildar hjá fjármálafyrirtækjum.

Með lögum nr. 75/2010 var m.a. gerð breyting á 16. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í 1. mgr. 16. gr. laganna er kveðið á um að í fjármálafyrirtæki skuli starfa endurskoðunardeild sem annast innri endurskoðun. Á grundvelli 5. mgr. 16. gr. laganna getur Fjármálaeftirlitið, með hliðsjón af eðli og umfangi rekstrar einstakra fjármálafyrirtækja, veitt undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar eða frá einstökum þáttum starfsemi þeirra og sett þeim fyrirtækjum sérstök skilyrði sem slíka undanþágu fá. Leiðbeinandi tilmælin taka til þeirra skilyrða sem slíkri undanþágu verða sett.

Umsagnir vegna umræðuskjals nr. 1/2011 óskast sendar Fjármálaeftirlitinu eigi síðar en 5. mars nk.

Umræðuskjalið er að finna á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins undir útgefið efni, umræðuskjöl, sjá hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica