Fréttir


Fjármálaeftirlitið skipar Avant hf. bráðabirgðastjórn

13.7.2010

Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni Avant hf. um að skipa félaginu bráðabirgðastjórn á grundvelli 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 4. gr. laga nr. 44/2009.

Samkvæmt nefndu ákvæði laganna getur stjórn fjármálafyrirtækis, sem á í þeim fjárhags- og rekstrarerfiðleikum að líkur séu til að það geti ekki staðið við skuldbindingar sínar eða uppfyllt kröfur um lágmark eigin fjár, leitað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það taki við ráðum yfir fyrirtækinu. Við þær aðstæður getur Fjármálaeftirlitið skipað fjármálafyrirtækinu bráðabirgðastjórn.

Bráðabirgðastjórnin fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum Avant hf. og stjórn og hluthafafundur hefði annars haft á hendi.

Bráðabirgðastjórn Avant hf. skipa:

• Friðjón Örn Friðjónsson, hrl., formaður
• Hulda Rós Rúriksdóttir, hrl.
• Ljósbrá H. Baldursdóttir, lögg. endurskoðandi 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica