Fréttir


Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóða með ábyrgð launagreiðenda

15.6.2010

Fjármálaeftirlitið  beindi þeim tilmælum til lífeyrissjóða að flýta skýrsluskilum vegna tryggingafræðilega athugana, fyrir árið 2009, og voru skýrsluskil dagsett 15. maí sl. Nú hafa borist skýrslur um tryggingafræðilegar athuganir þeirra 16 lífeyrissjóða sem eru með ábyrgð launagreiðenda. Bráðabirgða niðurstöður sýna að heildar tryggingafræðileg staða þeirra er neikvæð um 57%.  Enginn sjóður er með jákvæða stöðu. Lífeyrissjóðir  sem eru með ábyrgð launagreiðenda þurfa ekki að skerða réttindi sjóðfélaga, þrátt fyrir neikvæða tryggingafræðilega stöðu. Þessir sjóðir hafa um langt árabil sýnt neikvæða tryggingafræðilega stöðu og eru flestir á vegum ríkis og sveitarfélaga.

Samkvæmt bráðabirgða niðurstöðum innsendra skýrslna eru flestir sjóðir með jákvæða raunávöxtun fyrir árið 2009. Aðeins 4 sjóðir eru með neikvæða raunávöxtun en þó mismunandi eftir sjóðum. Vegið meðaltal hreinnar raunávöxtunar allra 16 sjóðanna fyrir árið 2009 er nálægt 2,8%.

Myndin sýnir tryggingafræðilega stöðu og raunávöxtun lífeyrissjóða sem eru með ábyrgð launagreiðanda árið 2009.

Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.

Tryggingafræðileg staða og raunávöxtun lífeyrissjóða árið 2009

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica