Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Sparisjóðsins í Keflavík

17.5.2010

Þann 22. apríl sl. tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Sparisjóðsins í Keflavík og skipa sjóðnum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Sparisjóðurinn í Keflavík ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Sparisjóðsins í Keflavík sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs www.tryggingarsjodur.is/

Fjármálaeftirlitið bendir á frétt er birtist á vef eftirlitsins þann 23. apríl sl. þar sem fram kemur að innlán og eignir sjóðsins hafa verið fluttar til nýs sparisjóðs. Fréttina má sjá hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica