Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Byrs sparisjóðs

17.5.2010

Þann 22. apríl sl. tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Byrs sparisjóðs og skipa sjóðnum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Byr sparisjóður ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Byrs sparisjóðs sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs www.tryggingarsjodur.is/

Fjármálaeftirlitið bendir á frétt er birtist á vef eftirlitsins þann 23. apríl sl. þar sem fram kemur að innlán og eignir sjóðsins hafa verið fluttar til nýs viðskiptabanka. Fréttina má sjá hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica