Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna VBS fjárfestingarbanka hf.

17.5.2010

Þann 3. mars sl. tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar VBS fjárfestingarbanka hf. og skipa bankanum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi VBS fjárfestingarbanki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum VBS fjárfestingarbanka hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs www.tryggingarsjodur.is/
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica