Fréttir


Arev verðbréfafyrirtæki hf. fær auknar starfsheimildir

22.3.2010

Fjármálaeftirlitið veitti Arev verðbréfafyrirtæki hf. þann 10. mars 2010 auknar starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki og var starfsleyfi félagsins endurútgefið með tilliti til þess.

Starfsleyfi til Arev verðbréfafyrirtækis hf. var fyrst gefið út þann 28. mars 2006. Það náði þá til móttöku og miðlunar fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga (í tengslum við eignastýringu) og eignastýringu skv. a. og c. lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsheimildir félagsins tóku til a. og d. liðar 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Félagið hefur ekki starfsheimildir til að stunda viðskipti fyrir eigin reikning eða sinna sölutryggingu fjármálagerninga.

Til viðbótar við ofangreinda þjónustuþætti tekur endurútgefið starfsleyfi Arev verðbréfafyrirtækis hf. til ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótunar og skyldra mála og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaupa á þeim skv. 1. mgr. 25. gr. áðurnefndra laga.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica