Fréttir


Upplýsingaskiptasamningar við Bresku Jómfrúareyjar og Alberta-fylki

5.3.2010

Fjármálaeftirlitið hefur gengið frá upplýsingaskiptasamningum  við  Fjármálaeftirlitið á Bresku Jómfrúareyjum (The British Virgin Islands Financial Services Commission) og Verðbréfaeftirlit Alberta (Alberta Securities Commission)  í Kanada. 

Upplýsingaskiptasamningarnir beinast að því að setja ramma sem Fjármálaeftirlitið og viðkomandi stofnanir geta stuðst við í samstarfi sínu. Í samningunum er lýst yfir vilja til að skiptast á trúnaðarupplýsingum sem gera stofnunum kleift að fullnægja eftirlitsskyldum sínum.

Bresku Jómfrúareyjar eru breskt yfirráðasvæði. Eyjarnar eru um fimmtíu talsins og eru nyrst í Litlu-Antillaeyjaklasanum. Stærsta eyjan er Tortola og þar er Road Town sem er höfuðstaðurinn. Íbúar Bresku Jómfrúareyja eru á þriðja tug þúsunda. Alberta er sem kunnugt er eitt af fylkjum Kanada.  Höfuðborg þess er Edmonton og er fólksfjöldi á fjórðu milljón.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica