Fréttir


Fjármálaeftirlitið skipar VBS fjárfestingarbanka hf. bráðabirgðastjórn

3.3.2010

Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni VBS fjárfestingarbanka hf. um að skipa bankanum bráðabirgðastjórn á grundvelli 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 4. gr. laga nr. 44/2009.

Samkvæmt nefndu ákvæði laganna getur stjórn fjármálafyrirtækis, sem á í þeim fjárhags- og rekstrarerfiðleikum að líkur séu til að það geti ekki staðið við skuldbindingar sínar eða uppfyllt kröfur um lágmark eigin fjár, leitað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það taki við ráðum yfir fyrirtækinu. Fjármálaeftirlitið getur þá skipað fjármálafyrirtækinu bráðabirgðastjórn.

Bráðabirgðastjórnin fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum VBS og stjórn og hluthafafundur hefði annars haft á hendi.

Bráðabirgðastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. skipa:
• Hróbjartur Jónatansson, hrl., formaður   
• Þórey S. Þórðardóttir, hrl.
• Friðbjörn Björnsson, löggiltur endurskoðandi.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861.

 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica