Fréttir


Breytt framkvæmd við mat á hæfi stjórnarmanna

17.2.2010

Fjármálaeftirlitið hefur sett á stofn þriggja manna ráðgjafarnefnd um mat á hæfi stjórnarmanna, sem skipuð er sérfróðum aðilum en þeir eru: Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur sem er formaður, Einar Guðbjartsson, dósent hjá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Rúnar Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu.

Tilgangurinn með ráðgjafarnefndinni er að stuðla að bættu og hertu eftirliti með því að hæfisskilyrði um stjórnarmenn eftirlitsskyldra aðila séu uppfyllt og ekki síður til að tryggja að stjórnarmenn séu vel meðvitaðir um hvaða þekkingar er krafist og hvað felst í ábyrgð sem fylgir stjórnarstörfum. Nefndin mun veita umsögn um hæfi viðkomandi stjórnarmanns sem höfð verður til hliðsjónar við ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um hæfið.

Fjármálaeftirlitið ákveður að teknu tilliti til umfangs á starfsemi viðkomandi eftirlitsskylds aðila, þ. á m. starfsleyfis, reksturs og markaðshlutdeildar, hvort óskað verður eftir umsögn ráðgjafarnefndarinnar. Þegar umsagnar er krafist munu stjórnarmenn verða kallaðir til fundar við ráðgjafarnefndina til viðtals um þau efnisatriði sem varða þekkingu og viðhorf stjórnarmannsins á starfsemi eftirlitsskylda aðilans og ábyrgð stjórnar.

• Verklag við hæfismat má nálgast hér.
• Starfsreglur ráðgjafarnefndar má nálgast hér.
• Viðauki – Dæmi um viðtalsþætti má nálgast hér.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica