Fréttir


Fjármálaeftirlitið kannast ekki við kvörtun

13.11.2009

Fjölmiðlar hafa undanfarna daga flutt fréttir af eins milljarðs lánveitingu TM til Samherja árið 2006 til að kaupa bréf í TM. Staðhæft hefur verið að um brot á hlutafélagalögum hafi verið að ræða og fylgt hefur sögunni að stjórnarmenn í TM hafi sent kvörtun til Fjármálaeftirlitsins en þar hafi engin niðurstaða fengist.

Fjármálaeftirlitið hefur af þessu tilefni farið vandlega yfir gögn frá þessum tíma er varða málefni TM og hefur ekki borist kvörtun um þetta efni frá stjórnarmönnum TM.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica