Fréttir


Athugasemd við frétt Morgunblaðsins

8.10.2009

Í frétt Morgunblaðsins í dag er fullyrt að Fjármálaeftirlitið hafi vísað rannsókn á fjárfestingum ákveðinna peningamarkaðssjóða til  sérstaks saksóknara og vitnar blaðið til ónafngreindra heimilda í því sambandi. Í fréttinni er enn fremur haft eftir Fjármálaeftirlitinu  að rannsóknir þess á peningamarkaðssjóðum standi enn yfir og að vonandi sé niðurstaðna að vænta á næstu vikum. 

Fjármálaeftirlitið vill taka fram að svar þess var gefið við almennri spurningu um hvað væri að frétta af rannsóknum á peningamarkaðssjóðum. Það beindist ekki sérstaklega að fjárfestingum þeirra eins og mögulega má skilja af lestri greinarinnar. Fjármálaeftirlitið ítrekar að það gaf blaðamanninum engar aðrar upplýsingar.

Fjármálaeftirlitið vill enn fremur benda á að í umfjöllun Morgunblaðsins var miðað við að peningamarkaðssjóðir hafi haft sömu fjárfestingarheimildir og verðbréfasjóðir. Staðreyndin er sú að allir peningamarkaðssjóðir voru fjárfestingarsjóðir en um þá gilda talsvert rýmri fjárfestingarheimildir.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, sími: 525-2700 og farsími: 840-3861

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica