Fréttir


Upplýsingar um hagnað og arðgreiðslur vátryggingafélaga vegna áranna 2006-2008

20.7.2009

Vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum síðastliðna helgi um arðgreiðslur vátryggingafélaga og hlutfall þeirra af hagnaði, telur Fjármálaeftirlitið rétt að birta upplýsingar um hagnað og arðgreiðslur þriggja stærstu vátryggingafélaganna vegna áranna 2006-2008. Þegar arðgreiðslur eru bornar saman við hagnað er rétt að hafa í huga að ákvörðun um arðgreiðslur er tekin á aðalfundum vátryggingafélaga og er þá miðað við afkomu ársins á undan. Þannig voru til dæmis arðgreiðslur vegna ársins 2006 ákveðnar á aðalfundum félaganna í ársbyrjun 2007 þegar árið 2006 var gert upp. Rétt er einnig að hafa í huga að samkvæmt 49. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi er heimilt að greiða yfirfærðan hagnað frá fyrri árum, enda sé ljóst að félagið uppfylli kröfur um tilskilið lágmarksgjaldþol, þess hafi verið gætt að leggja til hliðar nægilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og að settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu þeirra hafi verið fylgt.

Í töflunni hér að neðan kemur m.a. fram að öll félögin þrjú greiddu arð vegna ársins 2006 og að meðaltali námu arðgreiðslurnar 55% af hagnaði. Tvö af félögunum greiddu arð vegna ársins 2007 og enginn arður var greiddur vegna ársins 2008.

Arðgreiðslur 2006-2008

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica