Fréttir


GAM Management hf. fær starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða

24.3.2009

Fjármálaeftirlitið hefur þann 23. mars 2009 veitt GAM Management hf., kt. 530608-0690, Skipholti 50d, 105 Reykjavík, starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt 7. tölul. 1. mgr. 4. gr., sbr. 7. tölul. 1. mgr. 3. gr. og 2. - 3. tölul. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. 

Starfsleyfi GAM Management hf., tekur til reksturs verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu, fjárfestingarráðgjafar og vörslu og stjórnun fjármálagerninga í sameiginlegri fjárfestingu.

Rekstrarfélagið hyggst fyrst um sinn starfrækja einn verðbréfasjóð, Verðbréfasjóð GAM Management og tvo fagfjárfestasjóði skv. 4. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði, GAMMA: Iceland Fixed Income Fund og GAMMA: FX.

Verðbréfasjóður GAM Management er verðbréfasjóður og hefur sem slíkur heimild til markaðssetningar á Íslandi og í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Verðbréfasjóðurinn hefur eina sjóðsdeild, GAMMA: Iceland Government Fund. Samkvæmt reglum sjóðsdeildarinnar hyggst rekstrarfélag sjóðsins nýta heimild 37. gr. laganna til að binda allt að 100% af eignum hennar í verðbréfum og peningamarkaðsskjölum skv. 5. mgr. 35. gr. laganna, en skv. stefnu sjóðsdeildarinnar fjárfestir hún í fjármálagerningum sem gefnir eru út af ríkissjóði eða aðilum með ábyrgð ríkissjóðs. Vörslufyrirtæki sjóðsins er MP Banki hf.

Jafnframt hefur eigendum GAM Management hf., sem eru MP Banki hf., Ægir Invest hf. og Agnar Tómas Möller, verið veitt heimild til að fara með virkan eignarhlut í félaginu.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, s. 525-2700 eða gsm: 840-3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica