Fréttir


Ákvörðun um ráðstöfun innlána Straums - Burðaráss fjárfestingabanka hf.

17.3.2009

Fjármálaeftirlitið hefur tekið ákvörðun um ráðstöfun skuldbindinga Straums – Burðaráss fjárfestingabanka hf. á Íslandi vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi. Innstæður munu flytjast yfir til Íslandsbanka hf. miðað við stöðu og áunna vexti á yfirtökudegi með ákveðnum takmörkunum tilgreindum í ákvörðuninni. Allir skilmálar umræddra innlána um tímalengd, vaxtakjör, mynt o.þ.h. halda sér óbreytt gagnvart Íslandsbanka hf.

Straumur – Burðarás fjárfestingabanki hf. mun gefa út skuldabréf sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar og skulu allar eignir Straums – Burðaráss fjárfestingabanka hf. veðsettar til tryggingar fyrir skuldabréfinu.

Skilanefnd Straums – Burðaráss fjárfestingabanka hf. er falið að hrinda ákvörðun Fjármálaeftirlitsins í framkvæmd. Yfirfærsla innlána og útgáfa skulda- og tryggingarskjala mun fara fram eigi síðar en kl. 9.00 föstudaginn 20. mars 2009.

Ákvörðunina er hægt að lesa hér.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is , s. 525 2700 eða gsm 840 3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica