Fréttir


Fjármálaeftirlitið og sérstakur saksóknari setja sér samskiptareglur

16.3.2009

Sérstakur saksóknari og settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu 13. mars sl. verklagsreglur til grundvallar samstarfi sínu. Reglurnar hafa það markmið að greiða fyrir upplýsingaflæði milli aðila, stuðla að auknum skilningi á verkaskiptingu aðila og koma í veg fyrir að mál verði rannsökuð samtímis á fleiri en einum stað.

Í reglunum er m.a. kveðið á um samráðsfundi þar sem leitast er við að samræma verklag og skilgreiningu þeirra sakaratriða sem mál varða og þar sem skipst er á upplýsingum um stöðu mála og væntanlegar aðgerðir. Þá er einnig fjallað um nánari samvinnu og aðstoð við rannsókn einstakra mála.

Verklagsreglurnar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður G. Valgeirsson, GSM 840 3861 eða sgv@fme.is.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica