Fréttir


Fjárvakri - fjármálaþjónustu ehf. veitt innheimtuleyfi

6.2.2009

Fjármálaeftirlitið hefur veitt eftirfarandi fyrirtæki innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008:

  • Fjárvakur – fjármálaþjónusta ehf., kt. 521202-2620, Reykjavíkurflugvelli, Reykjavík.

Innheimtuleyfi ofangreinds aðila tekur til frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra skv. a. lið 1. mgr. 3. gr. nefndra laga og innheimtu eigin peningakrafna sem aðili hefur keypt í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni skv. 5. gr. sömu laga.

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að eftirtaldir aðilar mega stunda innheimtu án innheimtuleyfis skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 95/2008:

  • Lögmenn, þá er einnig átt við lögaðila sem að öllu leyti eru í eigu lögmanns/lögmanna og/eða lögmannsstofu/lögmannsstofa, að því skilyrði uppfylltu að starfsemin falli undir eftirlit úrskurðarnefndar lögmanna, sbr. 2. gr. reglna nr. 1210/2008 um framkvæmd eftirlits með innheimtustarfsemi samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008
  • Opinberir aðilar
  • Viðskiptabankar og sparisjóðir, aðrar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, S: 525-2700 og GSM: 840-3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica