Fréttir


Veiting innheimtuleyfa

16.1.2009

Fjármálaeftirlitið hefur veitt eftirfarandi fyrirtækjum innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008: 

  • Alskil hf., kt. 610606-0240, Suðurlandsbraut 30, Reykjavík, 
  • SPRON Factoring hf., kt. 450700-3470, Suðurlandsbraut 20, Reykjavík,
  • Veitu innheimtuþjónustu ehf., kt. 580501-2490, Nóatúni 17, Reykjavík,
  • Intrum á Íslandi ehf., kt. 701195-3109, Laugavegi 97, Reykjavík.

Innheimtuleyfi ofangreindra aðila tekur til frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra skv. a. lið 1. mgr. 3. gr. nefndra laga og innheimtu eigin peningakrafna sem aðili hefur keypt í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni skv. 5. gr. sömu laga.

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að eftirtaldir aðilar mega stunda innheimtu án innheimtuleyfis skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 95/2008:

  • Lögmenn, þá er einnig átt við lögaðila sem að öllu leyti eru í eigu lögmanns/lögmanna og/eða lögmannsstofu/lögmannsstofa, að því skilyrði uppfylltu að starfsemin falli undir eftirlit úrskurðarnefndar lögmanna, sbr. 2. gr. reglna nr. 1210/2008 um framkvæmd eftirlits með innheimtustarfsemi samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008,
  • Opinberir aðilar,
  • Viðskiptabankar og sparisjóðir, aðrar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, S: 525-2700 og GSM: 869-2733 eða Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, S: 525-2700 og GSM: 840-3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica