Fréttir


Fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum í samræmi við lög og reglur

2.10.2008

Af gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið koma því á framfæri að fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum hf. hafa verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.  

Fjármálaeftirlitið fylgist reglulega með því að fjárfestingar verðbréfa- og fjárfestingarsjóða séu í samræmi við reglur sjóðanna og ákvæði fyrrnefndra laga.  Í lok árs 2007 var gerð sérstök úttekt á Sjóði 9 hjá Glitni og var niðurstaða hennar að fjárfestingar og starfsemi hans  var í samræmi við lög og reglur.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veita Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, S. 525-2700 eða GSM: 869-2733 og Úrsúla Ingvarsdóttir, ursula@fme.is, S: 5252700 eða GSM: 821-4860.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica