Fréttir


Fjármálaeftirlitið veitir Lánasjóði sveitarfélaga ohf. starfsleyfi

21.9.2007

Fjármálaeftirlitið veitti Lánasjóði sveitarfélaga ohf., þann 14. september 2007, starfsleyfi sem lánafyrirtæki samkvæmt 3. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. yfirtók allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar Lánasjóðs sveitarfélaga og miðast stofnefnahagsreikningur við 1. janúar 2007.
 
Starfsleyfi Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. tekur m.a. til móttöku endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi annara en innlána, veitingu útlána sem fjármögnuð eru með endurgreiðanlegum fjármunum frá almenningi. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur jafnframt starfsheimildir samkvæmt 1. tl. - 2.tl., 6. tl., 7. tl. og 8. tl. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica