Fréttir


IMF fjallar um íslenskan fjármálamarkað og FME

24.8.2007

Í umfjöllun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) um Ísland bendir sjóðurinn á aukið vægi alþjóðlegs samstarfs FME við erlendar eftirlitsstofnanir þar sem hagsmunir íslenskra fjármálafyrirtækja erlendis hafi vaxið hratt á stuttum tíma. Þá bendir IMF á að alþjóðleg samvinna FME við erlendar eftirlitsstofnanir hafi vaxið mikið í takt við aukin umsvif íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendri grundu. IMF bendir á og fagnar að íslensk stjórnvöld hafi að markmiði að styrkja og efla enn frekar starfsemi Fjármálaeftirlitsins enda sé mikilvægt að FME vaxi áfram í takt við umfang og umsvif fjármálamarkaðarins. 

Í umfjöllun sjóðsins kemur fram að íslensku bankarnir hafi unnið sig vel í gegnum þann óróa sem skapaðist í kjölfar neikvæðrar umræðu og efasemda um íslenska fjármálakerfið á síðasta ári. Þeir hafi brugðist rétt við áhyggjum markaðsaðila sem og ábendingum FME. Þá kemur fram að FME hafi bent á að þar sem bankarnir væru mjög háðir fjármagnsmörkuðum hvað varðar fjármögnun yrðu þeir ávallt viðkvæmari fyrir viðbrögðum á mörkuðum og mikilvægt væri að gæta að  lausafjárstýringu bankanna og eignagæðum. Sjóðurinn bendir á að lausafjárstaða bankanna hafi batnað mikið frá því á síðasta ári. Einnig er tekið undir það viðhorf FME að íslensku bankarnir leggi aukna áherslu á að stýra nýjum og flóknari áhættum með skilvirkum hætti.   Loks kemur fram að álagspróf FME sýni að bankarnir hafi fullnægjandi fjárhagsstöðu og geti staðið af sér veruleg áföll.  Hins vegar taki prófið til frumáhrifa hugsanlegra áfalla en mæli ekki áhrif á seinni stigum.  Voru aðilar sammála um að þróa bæri álagsprófin enn frekar.

Sjónarmið IMF í takt við markmið FME
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, segir sjónarmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins almennt vera í takt markmið FME. ,,FME fylgist vel með þeim áhættum sem eru fyrir hendi í kerfinu og kemur sjónarmiðum sínum á framfæri við stjórnendur fjármálafyrirtækjanna telji það ástæða til. Eins og glöggt kemur fram hjá sjóðnum þá er starfsemi FME orðin mjög alþjóðleg með eftirlitsábyrgð í öðrum löndum og samvinnu við systurstofnanir í fjölda ríkja”, segir Jónas. Hann segir að FME geri frekari álagspróf til viðbótar hinu reglubundna, sem m.a. tengist afleiddum áföllum.  Hið formlega álagspróf sé í endurskoðun m.a. vegna alþjóðlegra eiginfjárregla sem gætu falið í sér að fleiri áhættuþætti verði prófaðir eins og rætt hafi verið við IMF.

Í skýrslunni kemur fram að krosseignarhald hafi verið minnkað og eignarhald bankanna sé orðið mun gegnsærra en áður. “Þetta er þáttur sem FME hefur lagt mikla áherslu á  síðastliðin tvö ár og mun áfram sinna að kostgæfni”.
 
Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

IMF Executive Board Concludes.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica