Fréttir


Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Sparisjóðs Bolungarvíkur við Sparisjóð Norðurlands ses.

2.7.2014

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 30. júní 2014 samruna Sparisjóðs Bolungarvíkur við Sparisjóð Norðurlands ses. á grundvelli 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Sparisjóður Norðurlands ses. tekur við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Bolungarvíkur og verða sjóðirnir sameinaðir undir nafni Sparisjóðs Norðurlands ses.

Samruninn mun ekki hafa áhrif á greiðslustað skuldaskjala en frestur til að gera athugasemdir við yfirfærslu innlánsreikninga skal vera 30 dagar frá birtingu auglýsingar þessarar í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica