Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsóknum á málum tengdum bankahruninu

14.2.2013

Fjármálaeftirlitið hélt í dag blaðamannafund í tilefni þess að stofnunin hefur lokið rannsóknum á málum tengdum bankahruninu. Á fundinum fóru Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Sigurveig Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri vettvangs- og verðbréfaeftirlits Fjármálaeftirlitsins meðal annars yfir fjölda mála sem voru rannsökuð, hve mörg voru kærð til embættis sérstaks saksóknara, hve mörgum var vísað þangað og hve mörgum var lokað án frekari aðgerða. Þær sögðu einnig frá skiptingu helstu brota og lýstu almennum dæmum um brot. Fréttatilkynningu frá fundinum sjá hér og glærukynningu hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica