Fréttir


Athugun á Dróma beindist að afmörkuðum atriðum á tilteknu tímabili

13.12.2012

Vegna auglýsinga sem birst hafa í dagblöðum undanfarið þar sem nafn Fjármálaeftirlitsins (FME) er notað í fyrirsögn, skal tekið fram að athugun sú sem gerð var vegna tiltekinna ábendinga um viðskiptahætti Dróma ehf., beindist að afmörkuðum atriðum og tilteknu tímabili, eins og glöggt má sjá í gagnsæistilkynningu um athugunina sem birt var 21. nóvember síðastliðinn. Ekki ber að skilja þá niðurstöðu svo að allsherjar heilbrigðisvottorð hafi verið gefið út um starfsemi félagsins eða viðskiptahætti þess.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica