Fréttir


Skýrsla FME um ársreikninga fjármálafyrirtækja árið 2005

10.12.2006

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með ársreikningum ársins 2005 og ýmsum samandregnum upplýsingum úr ársreikningum fyrir viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki (einu nafni lánastofnanir), verðbréfafyrirtæki og verðbréfamiðlanir og rekstrarfélög verðbréfasjóða ásamt verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum.

Í skýrslunni má finna ýmsar upplýsingar sem lúta að íslenskum fjármálamarkaði, sem dæmi má nefna:

Heildareignir samstæða 38 lánastofnana í árslok 2005 námu alls 6.202 ma.kr. en voru 3.383 ma.kr. árið 2004 og er aukningin því 83%.

Samanlagður hagnaður samstæða lánastofnana á árinu 2005 nam alls 136,4 ma.kr. en var 52,9 ma.kr. á árinu 2004.

Samanlagðar heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í árslok 2005 námu alls 362,6 ma.kr. en 275,8 ma.kr. í árslok 2004. Aukning heildareigna þessara sjóða á árinu 2005 var því 31,5%.  

Stöðugildi hjá fjármálafyrirtækjum (móðurfélög) í árslok 2005 voru alls 4.548 en voru 4.189 í árslok 2004 og fjölgaði því stöðugildum um 359 eða um tæp 9% á árinu 2005.

Fjöldi afgreiðslustaða viðskiptabanka og sparisjóða voru 171 í árslok 2005 miðað við 178 árið áður.  

Efni skýrslunnar er að hluta til sambærilegt því sem birt hefur verið í fyrri skýrslum Fjármálaeftirlitsins um sama efni en er nú sett fram með nokkuð öðrum hætti þar sem ársreikningar lánastofnana fyrir árið 2005 eru gerðir samkvæmt mismunandi reikningsskilaaðferðum. Hægt er að hlaða skýrslunni niður í heild sinni  hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica