Fréttir


Samruni Íslandsbanka hf. og Kreditkorts hf.

3.4.2012

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 30. mars 2012 samruna Íslandsbanka hf. og Kreditkorts hf. á grundvelli 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Íslandsbanki hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Kreditkorts hf. og verða félögin sameinuð undir nafni Íslandsbanka hf.

Heiti hins sameinaða félags er Íslandsbanki hf., heimilisfang félagsins er að Kirkjusandi, 105 Reykjavík. Sérhæft kortaútibú undir vörumerkinu Kreditkort mun verða rekið að Ármúla 28 og mun það veita viðskiptavinum sínum sömu þjónustu og áður.

Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica