Fréttir


FME: Úrskurði Kærunefndar hnekkt

10.12.2006

Fjármálaeftirlitið hefur gert dómsátt í máli sem það höfðaði til ógildingar á úrskurði Kærunefndar í máli nr. 4/2006. Málið varðaði þá niðurstöðu Kærunefndar að útgefanda bæri ekki að tilkynna viðskipti með eigin bréf til birtingar í Kauphöll eins og kveður á um í lögum um verðbréfaviðskipti (64. gr. laga. nr. 33/2003). Fjármálaeftirlitið taldi niðurstöðu Kærunefndar ekki standast lög og leitaði því til dómstóla.

Fyrir dómstólum varð það sameiginlegur skilningur málsaðila að úrskurður Kærunefndar væri byggður á röngum lagaforsendum og var málinu því lokið með dómsátt þar sem fallist var á dómskröfu FME um ógildingu úrskurðar Kærunefndar.

“Þessi niðurstaða er afar mikilvæg fyrir gegnsæi og heilbrigði markaðarins og þess vegna  ber að fagna því að þessum undarlega úrskurði kærunefndar hafi verði hnekkt og hann standi ekki sem fordæmi”, segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica