Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2011 haldinn í dag

9.11.2011

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins var haldinn í Sólarsal Rúgbrauðsgerðarinnar nú síðdegis. Á fundinum var Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2011 kynnt. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra flutti ávarp og Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Gunnar Þ. Andersen forstjóri fjölluðu um helstu áherslur í starfi stofnunarinnar og kynntu ársskýrsluna.

Til fundarins var meðal annars boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni, auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins 2011 má sjá hér.

Ræðu Aðalsteins Leifssonar, stjórnarformanns Fjármálaeftirlitsins, má sjá hér og ræðu Gunnars Þ. Andersen, forstjóra má sjá hér og glærur hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica