Fréttir


Fjármálaeftirlitið samþykkir yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA Capital Management hf. til Júpíters rekstrarfélags

30.7.2019

Þann 24. júlí 2019 samþykkti Fjármálaeftirlitið yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA Capital Management hf, til Júpíters rekstrarfélags, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Um er að ræða rekstur GAMMA: Iceland Fixed Income Fund og GAMMA: Credit Opportunity Fund. Yfirfærslan vegna GAMMA: Credit Opportunity Fund átti sér stað þann 1. júlí sl. og mun yfirfærsla vegna GAMMA: Iceland Fixed Income Fund eiga sér stað þann 1. ágúst nk.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica