Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið YNWA ehf. og Arnór Gunnarsson hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf.

1.2.2016

Hinn 18. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að YNWA ehf., kt. 550413-0190, sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf. sem nemur 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Arnór Gunnarsson hæfan til að fara með 20% virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf., með óbeinni hlutdeild.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica