Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið RedRiverRoad ehf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf.

2.2.2018

Hinn 23. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að RedRiverRoad ehf. væri hæft til að fara með yfir 50% virkan eignarhlut í verðbréfafyrirtækinu Íslenskum fjárfestum hf., sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Hannes Árdal, eiganda RedRiverRoad ehf., hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf. með óbeinni hlutdeild. 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica