Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið Íslenska eignastýringu hf., Gunner ehf. og Straum fjárfestingabanka hf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum verðbréfum hf.

4.12.2014

Fjármálaeftirlitið hefur hinn 24. nóvember sl. komist að þeirri niðurstöðu að félögin Íslensk eignastýring hf., Gunner ehf. og Straumur fjárfestingabanki hf. séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í  Íslenskum verðbréfum hf. sem nemur 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002.

Íslensk eignastýring hf. átti fyrir 21,83% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. Gunner ehf. fer með 64,3% eignarhlut í Íslenskri eignastýringu hf. en Straumur fjárfestingabanki hf. á allt hlutafé Gunner ehf. Íslensk eignastýring hf. hefur nýtt forkaupsrétt að 8,79% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. og fer því með 30,62% eignarhlut í Íslenskum verðbréfum hf.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica