Fréttir


Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitið kallar eftir umsögnum um tæknistaðla

19.2.2015

Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitið (European Securities and Markets Authority (ESMA) hefur kallað eftir umsögnum um tæknistaðla sem setja á með stoð í tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga (Markets in Financial Instruments Directive (MiFID2)) og reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (Markets in Financial Instruments Regulation (MiFIR)).

Vakin er athygli á að frestur til að skila umsögnum er til 2. mars 2015. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ESMA: http://www.esma.europa.eu/consultation/Consultation-MiFID-IIMiFIR

Gert er ráð fyrir að MiFID2 tilskipunin og MiFIR reglugerðin verði teknar inn í EES-samninginn á næstu misserum og í kjölfarið innleiddar í íslenskan rétt.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica