Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2019 verður haldinn 16. maí kl. 15:00 í Norðurljósum í Hörpu

14.5.2019

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2019 verður haldinn þann 16. maí næstkomandi. Fundurinn fer fram í Norðurljósum í Hörpu og hefst klukkan 15:00.

Fundinn ávarpa: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Ásta Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Til fundarins er boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica