Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2018 verður haldinn á morgun

7.5.2018

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2018 verður haldinn á morgun, 8. maí, klukkan þrjú síðdegis í Háteigi á fjórðu hæð Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.

Fundinn ávarpa Ásta Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Jón Þór Sturluson, starfandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Til fundarins er boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica